sunnudagur, desember 24, 2006

Gleðileg jól öll sömul

Þrettándi með þrýstinn barm,
þukla mátti á henni.
Kemur sjaldan tár á kvarm,
er hún kyssir mig á enni.

Þá hún kom í minn kofa,
kvensur stóðu í röðum.
Því allar vilja þær sofa,
hjá bóndanum á Ánastöðum.

föstudagur, desember 22, 2006

Ellefti var með andlitið eldrautt


Steingleymdi að henda nýjum inn í gær, var upptekinn við drykkju á Þorleifsstöðum.

miðvikudagur, desember 20, 2006

Sá níundi naut ölsins


Eyrun voru á þeim áttunda


mánudagur, desember 18, 2006

Sjöundu voru svartir


Sökum bilunar í Candat-3 sæstrengnum féllu ferðir jólasveinanna niður í gær, en í staðinn komu 2 í nótt. Hvet alla til að fara inn á ruv.is og sjá Helgarsportið frá því í gær.

laugardagur, desember 16, 2006

Sá næsti var nefstór

föstudagur, desember 15, 2006

Forystuhrútur var sá fjórði

fimmtudagur, desember 14, 2006

Þriðji var sá þétti

miðvikudagur, desember 13, 2006

Kóngurinn (R.I.P) kom næstur

þriðjudagur, desember 12, 2006

Jóladagatal Ánastaða

föstudagur, desember 08, 2006

Draumur að vera með dáta????

Loksins sér fyrir endann á verkefnavinnu þessa önnina og maður getur farið að "einbeita" sér að próflestri, maður notar kannski tímann og gerir jólahreingerninguna.

Prófaði í fyrsta skipti að vera í malarflutningum á mánudaginn síðasta. Binni í Eskiholti þurfti eitthvað að bregða sér frá vinnu og því var ég kallaður til leiks og keyrði grjóti í afleggjarann heim til hans á mánudaginn og þriðjudagsmorguninn. Að vísu varð nú ekki mikið úr verki á þriðjudaginn því gröfumaðurinn svaf yfir sig um klukkutíma og svo bilaði glussakerfið eftir 2 ferðir. Þegar ég var að bíða meðan mokað var á mig datt mér alltaf í hug sagan sem Loganinn sagði um að Stefán Gísli hefði einu sinni sofnað með Loganinn var að moka á hann og þurfti að fara út úr gröfunni til að vekja hann..... hvernig er þetta hægt.

Fór í sýruna í dag til að kaupa jólagjafir, var rétt rúman klukkutíma í KRON (eða hvað sem þessi búð þeirra Reykvíkinga heitir) og þar af fór hálftími í að fá mér að éta. Hápunkturinn var að hitta Frú Þuríði Þorbergsdóttur og Fröken Margréti Gísladóttur, báðar kenndar við Glaumbæ (ímyndið ykkur, þær kenndar við Glaumbæ og Gísli öskrandi "stelpur, komið inn og hættið þessu fylleríi").

Þar til síðar

Íslenskur landbúnaður fyrir sjálfstæða þjóð