föstudagur, desember 08, 2006

Draumur að vera með dáta????

Loksins sér fyrir endann á verkefnavinnu þessa önnina og maður getur farið að "einbeita" sér að próflestri, maður notar kannski tímann og gerir jólahreingerninguna.

Prófaði í fyrsta skipti að vera í malarflutningum á mánudaginn síðasta. Binni í Eskiholti þurfti eitthvað að bregða sér frá vinnu og því var ég kallaður til leiks og keyrði grjóti í afleggjarann heim til hans á mánudaginn og þriðjudagsmorguninn. Að vísu varð nú ekki mikið úr verki á þriðjudaginn því gröfumaðurinn svaf yfir sig um klukkutíma og svo bilaði glussakerfið eftir 2 ferðir. Þegar ég var að bíða meðan mokað var á mig datt mér alltaf í hug sagan sem Loganinn sagði um að Stefán Gísli hefði einu sinni sofnað með Loganinn var að moka á hann og þurfti að fara út úr gröfunni til að vekja hann..... hvernig er þetta hægt.

Fór í sýruna í dag til að kaupa jólagjafir, var rétt rúman klukkutíma í KRON (eða hvað sem þessi búð þeirra Reykvíkinga heitir) og þar af fór hálftími í að fá mér að éta. Hápunkturinn var að hitta Frú Þuríði Þorbergsdóttur og Fröken Margréti Gísladóttur, báðar kenndar við Glaumbæ (ímyndið ykkur, þær kenndar við Glaumbæ og Gísli öskrandi "stelpur, komið inn og hættið þessu fylleríi").

Þar til síðar

Íslenskur landbúnaður fyrir sjálfstæða þjóð