laugardagur, apríl 01, 2006

Fréttir af Mýrunum


Kíkti á Mýrarnar í gær, þetta er ekkert smá landsvæði sem hefur brunnið þarna. Kunni að vísu ekki við að fara mjög nálægt þessu ef ég skildi vera fyrir bændum og slökkviliðsmönnum. Sá Ánastaði og fannst nú ekki mikið til þeirra koma, frétti svo reyndar að það væri hálf skrítið fólk sem byggi þarna, en ég var svekktastur með að það var ekkert bæjarskilti sem ég gæti tekið mynd af. Á leiðinni til baka fór ég svo að einhverjum fossi í Langá og tók nokkrar myndir sem hægt er að skoða í myndaálbúminu.

Íslenskur landbúnaður fyrir sjálfstæða þjóð